Augnmeðferð, dekur og jólaát

Nú er sko heldur betur komin tími á nýja færslu frá konunni, það er orðið aðeins of langt síðan síðast. En það hefur verið nóg að gera svo sem,skólinn, leikfimin, matarræðið já og yndislega fjölskyldan mín sem styður svo vel við bakið á mér í þessu öllu saman.

Í vikunni fórum við Smartlandsskvísurnar til hennar Mæju í Misú í augnmeðferð og dekur. Þetta var dásamlegt og þvílík aflsöppun fyrir mig  þar sem dagarnir hafa verið langir og streita og stress hafa verið alsráðandi sökum próflesturs og verkefnaskila. En ég náði fullkominni afslöppun um leið og ég lagðist í stólinn hjá Mæju og þessar 90 mínútur liðu eins og hendi væri veifað. Þannig að núna er ég alveg ofboðslega fín um augun og lesbaugarnir alveg að hverfa. Ég mæli 100% með henni Mæju og fer sko pottþétt þangað aftur. Við fengum líka rosa flotta gjafapakkningu sem inniheldur handáburð, andlitskrem, fótakrem og frábært krem fyrir appelsínuhúð, eitthvað sem kroppurinn þarfnast eftir þessi átök hjá Lilju.

Svo er ég aðeins farin að huga að jólaátinu. Er farin að skipuleggja mig aðeins og er búin að ákveða svona nokkurnvegin hvernig hátíðarátið verður á mínu heimili. Mér finnst það nauðsynlegt þar sem ég ætla ekki að detta í gamla farið yfir hátíðina og háma í mig mat og kökur. Ég er búin að finna uppskrift af köku sem ég ætla að baka handa mér og tilvonandi eiginmanninum, þar sem hann er að sjálfsögðu á sama mataræði og ég, hún virkar rosalega góð og holl á pappírnum.

Nú fara þessar 12 vikur senn að klárast og ég hugsa með þakklæti og gleði um þennan tíma. Ég er svo þakklát fyrir að ég skildi vera valin til þess að taka þátt í þessu frábæra verkefni og ég veit ekki hvernig ég væri í skrokknum eftir alla þessa setu við lærdóminn ef ég hefði ekki Lilju mína til þess að píska mig áfram, toga mig og teygja. Svo er bara að kaupa sér kort í Sporthúsinu og halda áfram.

Eigið yndislega helgi


Alltaf nóg að gera

Í vikunni fórum við leikfimisvinkonurnar út að borða á Baazar Oddson sem er frábær staður sem opnaði í sumar. Þar var sko heldur betur gert vel við okkur og maturinn var frábær. Við hittum hópinn sem var í lífstílsbreytingu smartlands og sporthússins í fyrra og þær sögðu okkur frá sínum árangri og hvernig gengi hjá þeim í dag. Það var mjög gaman að hitta þessar hressu stelpur og sjá hvað þeim hefur öllum gegnið vel í sínum nýja lífstíl.

Núna er áttunda vikan að klárast og það verður spennandi að sjá hvað næstu tölur segja. Ég get varla trúað því að það séu bara fjórar vikur eftir af þessu skemmtilega verkefni en bara svo það sé á hreinu þá er þetta verkefni ekki búið hjá mér eftir fjórar vikur, ég mun halda áfram og áfram og áfram. Ég hef svolítið verið að hugsa um hvað ég ætla að gera næst og hvað ætli það sé sem henti mér. Ég veit það ekki alveg, ég hef enn fjórar vikur til þess að ákveða mig en þessar fjórar vikur eru mjög fljótar að líða.

En á þessari áttundu viku líður mér mjög vel og ég hlakka bara til þess að halda áfram.

Þrátt fyrir miklar annir í skólanum og lífinu almennt hefur mér tekist að halda minni rútínu, mæta í leikfimina og halda mataræðinu góðu, það er það sem skiptir svo miklu máli.

Eigið yndislega helgi


Fíll í rólu

Ég er svo þakklát fyrir að hafa verið dregin út í að taka þátt í Lífstílsbreytingu Smartlands og Sporthúsins. Þvílík heppni. Ég velti því stundum fyrir mér hvernig staðan væri í dag ef ég hefði ekki verið svona heppin. Það er til dæmsi brjálað að gera í mastersnáminu mínu og stundum sit ég í 10 klukkutíma í skólanum að læra og líkaminn orðin stirður og stífur. Ég get bara rétt ímyndað mér hvernig ég væri ef ég hefði ekki þessa góðu hreyfingu sem ég fæ í Sporthúsinu. Og svo ég tali nú ekki um allt þetta frábæra fólk sem maður er búin að kynnast.

Á miðvikudaginn fórum við í leikfimishópnum í Anti-Gravity Aerial yoga í Sporthúsinu sem var frábært. Fyrir ykkur sem ekki vita þá er þetta yoga þar sem maður er í svona rólu sem hangir í loftinu. Væri svoldið hægt að líkja þessu við loftfimleika. Og vá hvað ég var stolt af mér þegar tímanum lauk, ég gat gert næstum því allt, með smá aðstoð stundum. En þarna snéri ég mér í hringi, var á hvolfi, flaug eins og fiðrildi og rólaði mér eins og fíll. Mér leið svona frekar eins og fíl en fiðrildi en ég sé mig alveg nálgast fiðrildið eftir nokkra tíma. Það var líka svo gott að taka þennan fyrsta tíma með stelpunum sem ég þekki þar sem við vorum allar á byrjunarreit og við gátum hlegið að okkur sjálfum.

Annars eru síðustu dagar búnir að vera eitthvað skrítnir hjá mér. Ég er búin að vera eitthvað slöpp og þreklaus þessa vikuna sem hefur áhrif á hreyfinguna hjá mér og ég afboðaði mig í tímann í gær sökum þess. Ég hef þó náð að halda mataræðinu í góðu lagi og það skiptir mig fíkilinn mestu máli.

En framundan er yndisleg helgi þar sem ég ætla að læra og læra aðeins meira, fara í matarboð með frábærum vinum og eiga yndislegar kósýstundir með fjölskyldunni.

 


Nýjar tölur :)

Ég er dugleg og ég er frábær já og ég er líka sexý. Vigtun og mælingar í gær og ég er svona líka ánægð með áragnurinn hjá mér. Á fjórum vikum hef ég losað mig við 4,3 kílógrömm, 28 sentimetra og 5,8 % af fitu, duglega ég. Ég er alveg búin að vinna fyrir þessu og vissi alveg að það væri einhver árangur en þetta var framar björtustu vonum þar sem vikan og helgin eru búnar að vera annasamar, brjálað að gera í skólanum og að sjálfsögðu í leikfiminni líka.

Síðasta miðvikudag fórum við skvísurnar í tíma hjá Anítu Sig. Það var alveg yndislegt, Aníta lætur mann alltaf fara að hugsa og minnir mann á hvernig hugurinn virkar. Það er svo gott að rifja það upp og vita það að maður sé ekki einn að berjast við allskonar ómögulegar hugsanir og minna mann á að segja við sjálfan sig: Ég elska þig og ég fyrirgef þér fyrir þessi mistök sem þú gerðir. Ekki vera að rífa sjálfan sig niður fyrir einhver mistök sem maður gerði.

Við töluðum líka meðal annars um það hvernig fólkið í kringum okkur tekur því að við séum ekki að boðra með þeim kökur og sætindi og jafnvel ekki tilbúnar að fá okkur áfengi, hvernig við eigum að bregðast við því áreiti sem fylgir oft nýjum lífsstíl og  það að maður sé leiðinlegur að vilja ekki fá sér.

Og svo töluðum við um kynorkuna og hvað við erum sexý. Aníta kenndi okkur aðferð til þess að töfra fram sexýheitin á hverjum morgni og hvað hugurinn hefur allt að segja um það hvernig okkur líður með það. Virk kynorka eykur brennsluna í líkamanum. Í tilefni að þessari umræðu og hugarfarsbreytingu hjá mér lét ég tilvonandi eiginmann minn setja upp risastóran spegil hérna heima, svo þið getið rétt ímyndað ykkur sexýheitin á þessu heimili.  

Eigið yndislegan dag í rigningu og roki en þegar það er svona veður úti fæ ég alltaf smá heimþrá í yndislegu eyjarnar mínar.


Frábær vika

Þá er komin mánudagur og framundan er mjög stór vika vegna þess að á fimmtudaginn er fyrsta vigtunin. Ég er bæði spennt og kvíðin fyrir því, hugsanir eins og: Hvað ef það mælist enginn árangur hjá mér og ég stend bara í stað, læðast að manni. Það væri skelfilegt. Á fimmtudaginn eru fjórar vikur síðan ég breytti um lífsstíl og ég hef gert allt eins og mér er sagt, eða svona næstum því allt svo ég ætla bara að vera jákvæð og vona það besta.

Tilvonandi eiginmaðurinn minn gaf mér gjöf á föstudaginn. Það er svona úr sem mælir allt hjá manni, svefn,hjartslátt, skrefafjölda,kílómetra og fl. Ég er vandræðalega spennt yfir þessu mælitæki og hlakka mikið til að byrja að nota það. Auðvitað notaði ég það um helgina en þar sem helgin fór í 12 tíma lestur og verkefnavinnu bæði laugardag og sunnudag var hreyfingin  sama sem enginn svo nýja græjan mín nýttist mér  ekki alveg sem skildi. Þannig að, núna er ég tilbúin í þessa flottu viku með nýja mælitækið mitt og nýjar tölur á fimmtudaginn, já  og ekki má gleyma Anítu Sig á miðvikudaginn. Vá hvað þetta verður frábær vika.

 


Lífið er yndislegt

Þá er vika 4 hafin og lífið er bara yndislegt. Það er meira en nóg að gera og tíminn flýgur áfram. Lilja pískar okkur út í Sporthúsinu þar sem við skvísurnar mætum á æfingar 4 sinnum í viku. Ég er búin að vera með svo miklar harðsperrur í rassinum núna í nokkra daga að ég á erfitt með að ganga upp stigana hér heima og það er ekkert grín því ég bý upp á 5 hæð í lyftulausu húsi. En það er sko alveg þess virði og þessi hópur er svo skemmtilegur. Mig hlakkar alltaf til þess að mæta á æfingar og hitta þessar hressu stelpur.

Og mér líður vel. Matarræðið gengur mjög vel og ég fer bara algjörlega eftir því sem ég var búin að ákveða og ætla mér að ná þeim markmiðum sem ég er búin að setja mér.

Á miðvikudagskvöldið förum við aftur til hennar Anítu og á fimmtudaginn verða svo 4 vikna mælingarnar, það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því.

Á þessu heimili mun helgin fara í lærdóm, gönguferðir og andlega uppbyggingu.

Eigið yndislega helgi

 


Skýrari hugsun

Nú er vika tvö hálfnuð og lífið er bara nokkuð ljúft. Þessir dagar hafa verið aðveldari en ég bjóst við og ég hlakka bara til þess að takast á við þetta verkefni. Auðvitað hafa harðsperrurnar verið að drepa mig, það mikið að ég hef átt erfitt með daglegar athafnir og líkaminn er búin að vera ansi þreyttur en ég veit af fyrri reynslu að þetta gengur yfir.Lilja heldur áfram að píska okkur út í sporthúsinu og þess á milli reyni ég að fara út að ganga og njóta haustlitanna í náttúrinni. 

Þó svo að ekki séu liðnar nema tæpar tvær vikur síðan ég byrjaði í þessum nýja lífstíl mínum þá finn ég svo mikin mun á mér andlega. Hugsunin er orðin skýrari og mér finnst heilinn vera farin að virka betur. Ég hef verið með mjög mikla vöðvabólgu og um leið og ég fer að hreyfa mig og teygja mig finn ég hvernig hún lagast og blóðflæi til heilans eykst. Ég hef líka þjáðst af streitu og mér finnst með aukinni hreyfingu að hún fari minnkandi. Streitan gerir mig eitthvað svo sljóa og annars hugar og ég finn töluverða breitingu á því.

Svo ég tali nú aftur um fyrirlesturinn hennar Anítu Sig þá gerði hann rosalega mikið fyrir mig líka. Ég minni mig á það mörgu sinnum á dag að hugsa jákvætt og tala vel til mín. Það er allt í lagi þó ég ruglist aðeins, þá bara stend ég upp aftur og held áfram. Það er svo mikilvægt að koma fram við sjálfa sig eins og bestu vinkonu sína. Ég hlusta á dáleiðsluna frá Anítu á hverju kvöldi, kveiki á henni í símanum mínum svo hún ómi um svefniherbergið og mér finnst það gera mér gott. Það er mjög mikið að gera hjá mér þessa dagana þar sem ég er í vinnu og í fullu mastersnámi í Háskóla Íslands samhliða því að aðlaga mig breittum lífstíl. Manninum mínum varð það að orði eitt kvöldið þegar við vorum komin upp í rúm og ég kveikti á Anítu..mér finnst ég heyra meira í Anítu þessa dagana en þér...

Eigið yndislegan sunnudag


Fyrstu tölur

Í dag fór ég í vigtun og mælingu hjá Lilju í Sporthúsinu og svo tók Marta María viðtal við mig. Ég var nú ekkert gríðalega ánægð með tölurnar sem komu úr mælingunum (þær verða ekki opinberaðar hér eins og er) en þá er bara enn meiri ástæða til þess að spýta í lófana og taka sig á. Það er svo merkilegt að ég veit alveg hvað er gott fyrir mig og hvað ég á að gera til þess að líða betur en samt geri ég það einhvernvegin ekki. Það er svo auðvelt að plata sjálfan sig og hugsa æi ég byrja bara á morgun eða ég hef ekki tíma og svo framveigis, svo áður en maður hefur snúið sér við hafa kílóin hlaðist utan á mann.

Hugurinn er líka svo skrítið fyrirbæri. Það var svo flottur fyrirlesturinn sem við fórum á hjá Anítu Sig þar sem hún talar um hugann og hvernig hann vill allt aðra hluti en til dæmis sálin, hvernig hann hræðist breytingar og vill alltaf vera á sama stað í sömu holunni. Þetta er svo rétt finnst mér.

Ég er í tímum í Sporthúsinu og sæki þar lokað námseið sem heitir Lífstílsbreyting Lilju. Mér finnst svo frábært hvað það er léttur andi í hópnum og hvað mér líður vel í tímunum. Það var mjög gott að taka á því aftur eftir langa pásu og finna fyrir harðsperrununum.

Eigið yndislega helgi 


Nýr lífstíll

Jæja það er ekki laust við að ég sé með fiðrildi í maganum og þau nokkur :) Í dag fer ég heldur betur út fyrir þægindarammann,ég var dregin út til þess að taka þátt í áskorun Sporthússins og Smartlands sem heitir nýr lífstíll og ég þáði það með þökkum. 

Í gær hitti ég Lilju einkaþjálfara í Sporthúsinu, Mörtu Maríu og þrjá aðra snillinga sem ætla að fara þetta ferðalag með mér og vá hvað mér leist vel á þennan hóp :)Fyrsta æfingin er í dag og eftir æfinguna verður vinnustofa með Anítu Sig þar sem við vinnum í hausnum á okkur.. ÉG ER TILBÚIN..


Um bloggið

Eyja Bryngeirsdóttir

Höfundur

Eyja Bryngeirsdóttir
Eyja Bryngeirsdóttir
Stelpukona með flott markmið og stóra drauma
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband